berglindgud.bloggar.is
29.04.2006Berglind
Nú er loksins eitthvað byrjað og þá er bara að krossa fingur og vona að það stoppi ekki... byrjaði að fá verki um ellefuleytið í morgun og koma þeir nokkuð óreglulega og eru frekar veikir - ÞVÍ MIÐURAnnars líður mér bara hrikalega vel.. sem er auðvitað bara gott mál því ég veit að mér mun ekki líða vel þegar líða tekur á þetta allt saman!! haha
Skrifa meira þegar eitthvað markvert fer að gerast!!!!
Bumban
27.04.2006Berglind
Tíminn líður ekkert allt of hratt þessa dagana þegar maður er að bíða eftir einhverju! ótrúlega skrítið... EN ég held í vonina að eitthvað fari nú að gerast, þó það verði nú ekki fyrr en um helgina þá verð ég sáttFór í smá svæðanudd til hennar Helenu minnar um daginn og fer aftur á morgun verði ekkert í gangi þá - og vona að hún geti nú bara nuddað drenginn niður úr mér! eins smekklega og það nú hljómar, hehe.
Nú er skólinn búinn - síðasti dagurinn var í dag og við tekur bara prófalestur sem er því miður fyrir mig því ég er húkkt á rauðu seríunni!!! Guð hjálpi mér
Hormónarnir hér á bæ eru í sögulegu hámarki en það er nú samt vonandi bara gaman að því - svona þegar maður lítur til baka amk!!!
Over and out- farin að leggja mig!
Here we go again!!!Berglind
Jæja þá er það bara að prófa enn einu sinni að blogga!!! Ætli ég nenni þvi þó nokkuð á endanum eins og alltaf... gefst alltaf upp eins og versti auli. En hvað um það?!
Annars er bara allt fínt að fréta af mér - ennþá bara ólétt of fín! Er reyndar að fara til hennar Helenu minnar og hún ætlar að reyna að nudda þetta úr mér!! það má nú reyna ALLT![]()
Annars er ég að fara að byrja í prófum 8.maí og það kemur nú bara í ljós hvernig það fer!!! Hef enga eirð í mér að læra- heldur leggst bara í lavenderbað og les ástarvellur og borða Cocoa Puffs eins og mér sé borgað fyrir það! Sem væri reyndar ágætt því þá væri ég á fullum launum!! hehe
Getur annars einhver sagt mér - hvað er málið með þetta mySpace dót????